Þriðjudagur 03. 03. 15
Um miðjan ágúst 2003 hækkaði Orkuveita Reykjavíkur (OR) gjaldskrá fyrir heitt vatn um 5,8% m.a, vegna tekjutaps af völdum hlýinda á árinu og þar með minni sölu á heitu vatni.
Hinn 25. febrúar 2015 birtist frétt á mbl.is um að OR hefði slegið met í sölu á heitu vatni í janúar 2015, alls 9.660 þúsund rúmmetrar, eða nærri 9,7 milljónir tonna. Fyrra metið var 9.631 þúsund rúmmetrar í desember árið 2013. Notkunin í febrúar var mikil en ólíklegt er talið að met hafi verið slegið þar sem mánuðurinn er þremur dögum styttri en janúar. Kannanir OR sýna að um 90% af heita vatninu renna til kyndingar.
Skyldi gjaldskráin lækka núna?
Mikill titringur er sagður hafa verið í dag vegna þess sem til stendur að sýna í Kastljósi kvöldsins, það er sölu á varningi sem á að geta stuðlað að bata veikra einstaklinga, án þess að það hafi verið vísindalega sannað. Þessi deila minnir á að þróun frétta og fréttatengdra þátta í hljóðvarpi og sjónvarpi hér á landi þróast jafnt og þétt í átt til neytendaþátta. Í tilviki Kastljóssins er mikill áhugi á efni sem tengist heilsu og heilbrigði eða félagslegri þjónustu af einhverju tagi.
Fyrir nokkrum árum heimsótti ég sænskan kunningja minn og sátum við heima hjá honum á kvöldfréttatíma, tveir áhugamenn um alþjóðamál og stjórnmál. Hann sagði: Ég er ekkert að kveikja á fréttunum, þær snúast hvort sem er ekki um annað en neytendamál.
Mér verður oft hugsað til þessara orða hans á fréttatíma. Í fréttum klukkan 18.00 í dag varð ég til dæmis ekki var við neina frásögn af ræðu forsætisráðherra Ísraels í Bandaríkjaþingi í dag, stórviðburði vegna heimsöryggismála.